Tess of the D'Urbervilles
Well.. yes my lovely readers I'm in english class and I'm reading a book named Tess of the D'Urbervilles.
Sem er bara nokkuð ágæt.. enn sem komið er.. En hún er ekkert auðlesin.. En þetta kemur.
Hvað hef ég svo verið að brasa síðustu daga er eiginlega bara voða fátt annað en að vera í skólanum og í vinnunni. Og vá hvað þessi mánuður er búinn að vera erfiður! En hann er að verða búinn svo að það er allt að verða bjartara núna!
Skólinn kominn á skrið, Matti fær vonandi atvinnuleysisbæturnar sínar og þá getum við gert eitthvað meira saman! En hann er samt svo æðislegur að hann vaskar upp, tekur til fyrir mig og eldar =)
En ætli ég verði ekki að fylgjast með.. svo að ég lofa að skrifa meira eftir helgina.. því þá hef ég eitthvað að skrifa um vegna þess að ég er að fara á þorrablót =)
En þar til næst
kv. Hafdis
Hjartađ er eini kompásinn sem getur vísađ ţér leiđina ađ innri friđ.
Já Gleðilegt ár elskurnar, ég hef bara ekki nennt né haft tíma til þess að vera að blogga. En ég verð vonandi betri í blogginu eftir að Skuggasveinn minn er kominn í hús og hann Draumur minn
.
Blessaði skólinn er náttúrulega byrjaður aftur og það er í síðasta sinn sem ég verð í VMA=), hæst ánægð með það, en samt voða leið vegna þess að Matti gat ekki farið í skólann þessa önn. Sem er mjög leiðinlegt vegna þess að þetta er mín síðasta önn í VMA.
Matti og Óskar bróðir áttu afmæli 7 janúar og til hamingju með það elskurnar mínar!!!! *kiss,kiss*
En sólin skín og ég er öll að koma til.. maður var orðin leiður á þessu djö. myrkri!!
En hvað get ég sagt meir.. ég bara veit ekki.. hehe=)
Þannig að ég ætla að blogga næst þegar ég er búin að gera eitthvað af mér.. hehe..
Hafdis
p.s
Ekkert smá slitið blogg.. haha=)
Erum svo sæt saman!!!=)
Jólin nánast búin!
Gleðileg jól!!! og bráðum gleðilegt nýtt ár dúllurnar mínar!!
Ég er náttúrulega búin að vera algjör trassi og ekkert skrifað frá því að prófin voru að fara að byrja. En niðurstaðan hjá mér var sú að ég fékk 2 níur, 2 áttur, 1 sjöu og 1 sexu
og vitið hvað??? Ég er bara asskoti sátt með það skomm! Ég sem hélt að ég myndi rétt slefa yfir alla áfangana. Eeenn neeeii kjellan er sko klár!! Hehe..
Ég fór svo bara að vinna eftir prófin og vann alveg til 22 des og þá fór ég heim í sveitina og er þar enn.. en ég verð að vera komin aftur á nýjársdag því ég þarf að fara að vinna morguninn 2 jan 2009.. sem er já.. svona æi nenni því hálf ekki. Skólinn byrjar svo aftur 7 janúar á afmælisdag Matta og Óskars bróður.. gaman..nee held ekki en jú samt.
Jólin voru rosalega góð hjá mér, fengum æðislegan mann til okkur um jólin og auðvitað var það hann Nóni. Hann fór svo með pabba upp á fjöll fyrir tveim dögum og fór svo heim til sín í dag.
Ég fékk margar glæsilegar gjafir, eins og: vetrar úlpu, glæsó bækur, kertastjaka, buxur, skó og margt, margt fleira.
Svo fengum við Matti matreiðslubók saman, pönnu, kjötmæli og fl.
Mesta spennan hjá mér er að komast norður með hann Skuggasvein minn og að ná í folaldið mitt hann Draum!! Svo er ég að fara á sjálfstyrktarnámskeið í april, hlakka ekkert smá til!!!!
En hérna ég er samt að spá í að hætta þessu núna því að ég er að horfa hérna á OZ með öðru auganu og það kæmi mér ekkert á óvart ef það væri eitthvað skrítið... haha
En þar til næst
Take Care!!!!!
Skólinn nánast búinn.. 2 próf og pínu stressuđ!
Snjór, snjór, snjór...
Já það má segja það... ótrúlegt hvernig veðrið breytist hérna!
Viðvörun: Búist er við stormi víða um land. Spá: Norðanátt, víða 18-25 m/s og stórhríð, en úrkomulítið S-lands. Frost yfirleitt á bilinu 0 til 5 stig. Lægir heldur í kvöld og nótt og dregur úr ofankomu. Norðan 8-15 og él á morgun, en léttskýjað S- og V-lands. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum.
Meina oftast sé ég þegar veðrið er að fara að breytast en.. vá þetta er fáránlegt.. það var sko ENGINN snjór hérna í gær og ég meina.. bjóst kannski við einhverjum en ekki svona miklum..
En hvað um það, það er bara betra, Skonsa mín er að missa sig út á svölum í snjónum og það er ekkert smá sætt!
Skonsa sæta!
Já dagarnir líða og ég hef bara enga stjórn á neinu í kringum mig.. hehe já eða þannig..
En ég ætla allavega ekki að ljúga því að þetta er búin að vera ótrúlega strempin önn.. þá bara á allan hátt.. En ég á æðislega vini sem hjálpa manni og kærasta!
Ég fer í tvö lokapróf og það er í stæ313 sem er 2.des og svo Nær113 sem er 9.des. Ég er voða fegin að fara bara í tvö, en aðal vandamálið er að þetta eru ekkert létt próf.. ekki fyrir mig allavega.. En ég get þetta
.
Já og ég ætla ekki að halda því leyndu lengur en ég festi kaup á æðislegu folaldi!
Sem ég skírði Draum!
Hann er svo mikið æði!
Fæ hann eftir áramót og ég get ekki beðið!!
Jól, jól, jól... Já það er farið að nálgast í jólin og viti menn... ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar nema 2!.. en hins vegar á ég eftir að skrifa öll jólakortin.. En ég tek bara minn tíma í það þegar allavega annað prófið er búið...
Úúú... ég get ekki beðið til jóla... ég er svo mikið jólabarn að það er ekki einu sinni fyndið!.. Skreyta, pakka inn pökkum, vera með kertaljós, jólalög.. Æðislegt...
En ég er samt ekki þannig að ég byrji í byrjun október! NEI! Það skemmir bara jólin.. ég byrja nú bara að skreyta í desember og það er líka nóg..!
En já já já... hvað á ég að segja meira.. úú.. jú
Ég fór á djammið um síðustu helgi og VÁ! Þetta var eitt besta djamm sem ég hef farið á.. og samt að vinna báða dagana eftir... haha.. Ég var nú samt bara voða hress..
.
Ég bara varð að sleppa mér smá.. ég er ekki búin að gera neitt fyrir sjálfa mig í allan vetur svo að ég varð bara að gera þetta!.. En ég veit ekki alveg hvort að ég ætti að setja inn einhverjar myndir.. en ég geri það allavega ekki nuna því ég þarf þá að byrja á því að finna batterí og fl.
En ég er að spá í að láta þetta nægja í bili, því ég er orðin pínu svöng og er að spá í að fá mér hafragraut! mmm.. nammi..
Bæbæ í bili!
*Elskiði friðinn og strjúkiði kviðinn!
Löng helgi, ójá!
Dömur mínar og herrar. Það sem ég hef að segja núna er alveg magnað
.
Ég átti afmæli í síðasta mánuði eða rétt er sagt 23 september og var deginum eytt í nýju vinnunni í Hagkaup og svo að njóta þess að vera með Matta mínum.
Skólinn og vinnan gengur bara mjög vel, en það er mikið að gera og þess vegna hef ég ekkert verið að skrifa né farið neitt í heimsókn.
Helgin 26 - 28 var ættarmót hjá okkur eða já ömmu megin. Það var fullt af fólki sem kom og guð minn góður ég þekkti kannski 10% af liðinu.. haha
En þetta var mjög gaman og eftir ættarmótið þá skelltum við nokkur okkur niður í bæ. Sem var allt í key, en hefði mátt fara betur. En ég ætla að setja nokkrar myndir af ættarmótinu hérna á bloggið þegar ég er búin.
Já svo er ég að vinna aðra hverja helgi sem er bara magnað.. meina þetta eru peningar;).. hehe, ef það er hægt að segja það miða við hvernig ástandið er núna á Íslandi. En ég nenni ekkert að hugsa um þetta.
Já og svo átti ég alltaf eftir að segja ykkur að við eigum núna kanínu, eða já svona gott sem
, við fengum hana nefninlega hjá Önnu vinkonu og hún hafði engan tíma til að hafa hana. En hún heitir Skonsa og er geggt sæt!
Núna erum við í augnablikinu heima í sveit að hjálpa aðeins til, taka undan hestunum og ragast í kindunum og fleira. Sem er bara magnað. En það sem ég hlakka samt mest til er þegar ég get tekið Skuggasvein og byrjað að ríða út
.
En ætli ég láti þetta ekki nægja í bili þar sem ég er að hjálpa litla bróður að læra!
*Koss, koss og knús, knús
Þar til næst.
Hafdís
Matti og ég á djamminu
Rúnar og Davíð - Æðislegustu frændur í heimi!
Langamma- alltaf jafn sæt!
Jón bróðir og Ásdís sæta - Pose!
Valgerður sæta og Ég"
Hćhć og hóhó
Já elskurnar ég vil bara láta ykkur vita að ég er lifandi og hef það fínt. En einnig vil ég láta ykkur vita að það er að koma löng helgi hjá mér svo að ég get loksins bloggað almennilega og þá hef ég margt að segja frá.
En þangað til elskurnar þá bara elskiði hvort annað og farið þið varlega á veg lífsins![]()
Spánarferđin, skólinn, göngur og bara allt ađ gerast!
Sælir nú:D Jájájá... ég veit það er alltof langt á milli blogga hjá mér.. en þá segi ég bara elskurnar mínar. Ég á líf! Hehe.. ég er ekki að fara að sitja á hverjum degi og lýsa því hvað ég borðaði og svona:D Miklu skemmtilegra þegar það eru komnir nokkrir daga frá því síðast því þá hefur maður eitthvað að segja!
En eins og þið flest vitið þá skellti ég mér til Spánar 6 ágúst, sem var bara magnað. En samt í rauninni var ég búin að fá nóg eftir bara viku, vegna hita, óhreininda og endalausra ferðalaga!
En síðari vikan var svo sem fljót að líða, þannig að þetta var allt i lagi
. En það var farið í alskonar garða, moll, Go-kart, sirkus og margt, margt fleira! En það skemmtilega við þetta allt saman er.. að það er allaf gott að koma heim aftur
. Við fórum svo í loftið kl.23:00 á Spænskum tíma 20 ágúst og guð minn góður hvað maður var ekki sáttu þegar maður var búin að setjast í flugvélina! Nýlega/Sama dag hafði brotlennt flugvél í Madrid og fullt af fólki dáið eins og þið hljótið að vita og svo var pínu seinkunn á okkar flugvél af því að það var verið að setja eldsneyti á hana og hljóðin sem voru í vélinni voru ekki mjög uppörvandi! En þetta hafðist samt. Sem betur fer!
Við vorum lennt kl. 02:00 21ágúst og svo var bara brunað beint til Reykjavíkur og svo beint til Akureyrar. Af því að ég þurfti að mæt í skólann saman dag! Hehe.. En ég held að ég hafi verið búin að vaka í nánast 2 sólahringa þegar ég loksins sofnaði! Af því að ég kann engan veginn að sofa í flugvél eða bíl! En ég get ekki sagt að ég hafi ekki dottað. En það stóð aldrei lengi yfir.
Helgin þá skellum við okkur heim í sveit til að hjálpa til, en ég fór aðalega heim til þess að sjá báða eldri bræður mína! Því það er ekki oft sem það gerist. Vegna þess að þeir búa fyrir sunnan. Svo fór maður bara aftur í skólann og það er alltaf jafn skemmtilegt og venjulega
. Ég lenti með Eyjó, Sóley, Hönnu og Þuru í tíma, sem er bara magnað! Því það er alltaf leiðinlegt að vera í tíma þar sem þú þekkir engan. En sem betur fer er það bara einn tími hjá mér.
Síðustu helgi skellti ég mér aftur heim í sveit á meðan Matti fór austur í brúðkaup hjá frænku sinni. En ég þurfti að hjálpa við að járna, reka kvígur og margt fleira.
En svo á morgun fer ég aftur heim í sveit þar sem ég er að fara upp á heiði á fimmtudagsmorguninn til að smala
Jibbí!!!!
Sem minnir mig á það, þá verð ég að fara eftir skóla og kaupa súkkulaði:D.
En elskurnar mína ég verð bara að láta þetta nægja í bili, þar sem ég þarf að fara í skólan og ég set inn myndir um leið og ég man nafnið á ansk. síðunni sem ég er með myndirnar á:D hehe...
bæbæ í bili
*p.s. Dagrún, pabbi þinn er bilaður á flugvélinni;).. hehe
Er ađ bráđna!!!
Þegar ég fór í vinnuna í morgun, kl.08:00, þá var sko 16 stiga hiti úti! Og svo núna er búið að vera 24 stiga hiti úti i allan dag og nánast engin sól!
úff og ég er ekki að meika þetta... hvernig verð ég þá úti á Spáni
Well.. hvað á ég svo að segja ykkur meira.. hmm
Já mér til mikillar sorgar þá hérna var ég að vinna landsmótshelgina, á meðan aðrir gerðu ekkert annað en að hringja i mann og segja manni að hunskast á landsmót.. en.. nei..
Helgina eftir það var Húnavaka á Blönduósi, sem já var GEGGJAÐ gaman. Allavega ballið.. hahaha...
En svo var maður líka að reyna að ná þessum hrossum.. en það var ekki að ganga sökum vindar
Síðustu helgi fór ég svo aftur heim í sveit til þess að reyna að ná hrossunum... en viti menn... ÉG FANN ÞAU EKKI!! Piff..! Vá hvað ég var pirruð.. en allt batnaði með því að það var haldin smá grillveisla á sunnudagskvöldinu og maður fór vel saddur i bólið... ahhh
Núna um helgina var ég svo bara að vinna og já liggja í leti.. eða nei.. ég tók til í gær
Já svo að þetta er eiginlega það eina sem ég hef að frétta.. nema það að hún Mýsla okkar fékk bara að fara að sofa í síðustu viku.. Það var leiðinlegt en greyið var svo stressuð og ennþá svo lítil og horuð. Og hún var að verða 1. árs
Jú og svo eitt enn... Myndarvélin mín er fundin!!!:D:D Var búin að vera týnd i nánast 1. ár!! En viti menn, hún var í íbúðinni hjá mér allan tíman... en hvar?? Heyriði hún var nú bara í tölvu töskunni minni sem ég hafði ekki snert i nanast eitt ár... svo að þetta meikar alveg sens;) hehe...;)
En ætli ég láti þetta ekki nægja í bili:)
Adios amigos

Talandi um góðan ljósmyndara;) hehe.. En myndin er tekin í fjörunni á Blönduósi

Til minningar um litlu dúllunar okkar! Elska þig sæta*
p.s. Djókur... jú og hann elskulegi bróðir minn, hann Jón. Er búinn að trúlofa sig:D Til hamingju Jón og auðvitað Ásdís líka=)
Bíladagar, Bjarnardráp, Endurfundir, Hestakaup, Ćttarmót og common sense!
Já mikið hefur verið talað um Bíladaga á Akureyri í blöðum upp á síðkastið, eins og bjarnardrápin. Enda finnst mér það ekkert skritið! Ég var á bíladögum og ruglið sem fylgdi þessu liði sem kom í bæinn var ekkert smá! Meina hvað er málið að brjóta svona 1000 glerflöskur og snúa öllum skiltum og fl. Jæja þetta sýnir bara hve þrokað fólki er, því miður.
En annars voru bara bíladagar skemmtilegir hjá mér. Kobbi bró, Sólrún, Gísli, Sigrún og fl. gerðu sig heimkomin hérna alla helgina. Sem var geggjað=). Á föstudeginum fór ég og Matti í partý til Önnu, sem var geggjað gaman. Var stefnan tekin svo á Sjallann en við turtildúfurnar komumst aldrei þar inn vegna troðnings. Þannig að við fórum á Kaffi Ak. Þar sem við hittum Þröst, Krissu, Alan, Valey og fleira lið=). Svo endaði djammið með því að mér var boðið í veiðar daginn eftir.. haha...=D, algjör snilld. En auðvitað var ekkert að því.
Á laugardeginum var skellt sér á Vélsmiðjuna á Von og VÁ! Það var troðið. En þar hitti maður líka fullt af fólki. En ég get sagt ykkur það að föstudagurinn var betri.
Hmm.. á sunnudeginum var bara slakað á því maður þufti að fara í vinnu á mánudeginum. En samt skellti maður sér á drift og hitti Helgu=D!!! Sem var geggjað! Vá hvað ég var glöð að sjá þig sæta!! En maður fór samt og fékk sér einn öllara á Amor.. hehe=)
Mánudagurinn... úff... byrjaði á því að maður vaknaði snemma til þess að fara í vinnuna og hann bróðir minn þurfti þá endilega að vera skemmtilegur og segja:”Skemmtið ykkur i vinnunni!”. Urr mig langaði að lemja hann, að því að ég var sko ekki að nenna að fara i vinnuna! Engan vegin. En jæja...
Já ísbjarnarmálin voru alveg rosaleg og það var sko mikið rætt um þau... en ég ætla bara að segja þetta. Í guðana bænum ef þið gáfumenn þarna ætlið að reyna að þykjast bjarna birni aftur gerið það þá vel! Jesús minn! Og hana nú.
Endurfundir
Já hún Mýsla kom í leitirnar 15. júní og var heldur horuð og ljót greyið. En hún stoppar ekki lengi hérna hjá okkur. Því við vorum búin að ákveða að gefa hana. Vegna þess hve lítil íbúðin er og fl. Svo ef þið vitið um einhvern sem langar i kött þá bara endilega bjallið.
Vinnan gengur svo bara sinn vanagang
Núna um helgina var farið heim í sveitina á ættarmót. Sem var bara allt í key. En hefði mátt vera betra. En vá það var gott að komast heim í sveitina og slaka á. Hitta bræður mína, mömmu og pabba. Frábært og jú og auðvitað hann Snata líka.
En annars fór Skjóni gamli heim í sveit um miðjan mánuðinn og hann var mjög feginn að komast í sveitina aftur! Hehe..=) En annars gengur bara allt vel í sambandi við hestahobbýið því ég keypti hann Skuggasvein af Jóni bróður=)=)=)=)=)!! Ójá! Hehe. Ég hlakka ekkert smá mikið til að fá hann aftur hingað á Akureyri! Og Líka Helgu og Sóley!! Sakna ykkar geggjað! Og gangi þér á landsmótinu sæta! Verst að ég get ekki komið og hvatt þig!!!
En jæja ætli ég fari ekki að elda núna og tilla mér svo fyrir framan imbann=), hehe
Hafdís
Ég á djamminu =) Újé!

Anna sæta og ég =)

Anna sæta og Matti =)
Einnig setti ég inn nokkrar myndir af mér og Skjóna - hesthúsaferðir
Hestakaup??
En annars er bara allt gott að frétta af mér.. Alltaf bara sama rútínan. Vinna koma heim, elda, horfa á TV og fara svo að sofa.
En annars er bara voða fátt búið að gerast frá því að ég bloggaði síðast. Jú Mýsla týndist og hún er ófundin, ég lógaði næstum Skjóna, en hætti svo við. Ég og Matti fórum í sund með Óla og Adda. Hitti Magga, Alla og fleiri. Tók undan Skjóna af því að ég ætlaði að lóga honum.. piff... það er svona að vera of bráð á sér.
Jú Böddi er búinn að vera mikið hjá okkur, þannig að hann er eiginlega orðinn svona heimalingurinn okkar:D. Strákarnir fóru á djammið um helgina, ég var heima að sofa. Var nefninlega að vinna um helgina og svo í fríi í dag.. Hey! Það er 9. júní
ERLA!! TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKAN MÍN!!!:D:D:D
En jæja ég ætla að halda áfram að baka:D svo að ég tjái mig meira seinna:D
kv. Hafdís hestagella;)
